|
|||
2012-01-12 12:46:03 CET 2012-01-12 12:47:04 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0416 OG RIKV 12 0716Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0416 og RIKV 12 0716 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 12 0416: Alls bárust 19 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 18.250 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 10.950 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,295 (flatir vextir 2,81%). RIKV 12 0716: Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.475 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 8.250 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,629 (flatir vextir 2,75%). |
|||
|