|
|||
2014-01-09 10:06:05 CET 2014-01-09 10:07:06 CET REGULATED INFORMATION Skipti hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumNý stjórn og nýr framkvæmdastjóri MíluÁ hluthafafundi Mílu, dótturfélags Skipta hf., sem haldinn var miðvikudaginn 8. janúar var ný stjórn kjörin í félaginu. Stjórnina skipa Óskar Jósefsson, Helgi Magnússon, Orri Hauksson, Sigríður Dís Guðjónsdóttir og Sigríður Hrólfsdóttir. Óskar Jósefsson er formaður stjórnar. Úr stjórn gengu Gunnar Karl Guðmundsson og Guðrún Blöndal. Stjórn Mílu hefur ráðið Gunnar Karl Guðmundsson framkvæmdastjóra Mílu og tekur hann við starfinu af Páli Á. Jónssyni sem lætur af störfum að eigin ósk. Frekari upplýsingar: Orri Hauksson, forstjóri Skipta, sími 550-6003. |
|||
|