2014-01-09 11:26:07 CET

2014-01-09 11:27:08 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Garðabær - Fyrirtækjafréttir

Garðabær býður út skuldabréf


Garðabær, í samstarfi við Markaði Íslandsbanka, mun þann 13. janúar næstkomandi
bjóða til sölu skuldabréf í stækkuðum skuldabréfaflokki sveitarfélagsins, GARD
13 1. 

Sala hinna nýju skuldabréfa fer fram í samræmi við ákvörðun bæjarráðs
Garðabæjar þann 17. desember 2013 og verður salan með útboðsfyrirkomulagi.
Boðin verða til sölu skuldabréf samtals allt að 450 milljónir króna að
nafnvirði bréfsins. 

Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við Verðbréfamiðlun
Íslandsbanka. Tekið verður við tilboðum til klukkan 11:00 mánudaginn 13. janúar
nk. Garðabær áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum að hluta til eða í
heild. Gert er ráð fyrir skuldabréfin verði tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX
Iceland þann 20. janúar nk. 

 Allar nánari upplýsingar varðandi skuldabréfin og skuldabréfaútboðið eru
veittar af Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.