2013-02-26 18:00:37 CET

2013-02-26 18:01:39 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
RARIK ohf. - Ársreikningur

Ársreikningur RARIK fyrir árið 2012



Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á árinu 1.541 milljónir króna.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 4.351
milljónir króna eða 38,1% af veltu tíma-bilsins og samanborið við 32,7% á árinu
2011. Handbært fé frá rekstri var 3.257 milljónir króna. 

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2012 var
2.984 milljónir króna sem er rúmlega 34% aukning frá fyrra ári og í samræmi við
áætlanir. Vegna veikingar krónunnar og verðlagsbreytinga varð niðurstaða
fjármagnsliða neikvæð um tæpar 1.282 milljónir króna, en á árinu 2011 var
niðurstaðan neikvæð um 1.233 milljónir króna. Að teknu tilliti til endurmats
eigna og tekjuskattsáhrifa þess nemur útreiknaður heildarhagnaður ársins sem
færður er á eigið fé 6.180 milljónum króna. 

Rekstrartekjur hækkuðu um tæp 6% frá árinu 2011 og voru 11.412 milljónir króna,
en rekstrargjöld lækkuðu á milli ára um  1,4% og voru 8.428 milljónir króna. 

Fjármagnsgjöld á árinu 2012 voru eins og áður segir neikvæð um 1.282 milljónir
króna sem má að stórum hluta rekja til verðbólgu og veikingar krónunnar. 

Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um
180 milljónir króna. 

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir RARIK í árslok 44.569 milljónir
króna, þar af nam endurmat eigna 5.798 milljónum króna. Heildarskuldir námu
19.062 milljónum króna, eigið fé var 25.507 milljónir króna og
eiginfjárhlutfall því 57,2% samanborið við 51,9% í árslok 2011.   Stjórn RARIK
samþykkir að greiddur verði út arður á árinu 2013 sem nemur allt að 310
milljónum króna. 

Ársreikningur RARIK  er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Horfur

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2013 eru sambærilegar og á liðnu ári, en afkoman
ræðst hins vegar af almennri þróun efnahagsmála, verðlagsþróun og gengi
krónunnar. Áætlanir ársins 2013 gera ráð fyrir hagnaði af rekstri félagsins í
samræmi við langtíma fjárfestingaþörf í dreifikerfinu. Gjaldskrá fyrir
dreifingu var hækkuð um áramótin og var hækkunin að jafnaði 8% í dreifbýli en
gjaldskrá fyrir alla almenna notkun var óbreytt í þéttbýli. Gera má ráð fyrir
að á næstu árum þurfi enn að auka þann mun sem er á gjaldskrám í dreifbýli og
þéttbýli. Ekki hefur verið staðið við markmið laga að jafna þann mun með
framlagi á fjárlögum og hefur RARIK því haldið aftur af hækkunum í dreifbýli.
Gjaldskrá RARIK í dreifbýli er nú umtalsvert hærri en í þéttbýli. 

Vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og gert er ráð
fyrir að þeir haldist sambærilegir út árið 2013. 

Gert er ráð fyrir sambærilegum fjárfestingum í dreifikerfum og á fyrra ári. Til
viðbótar hefðbundinni endurnýjun í dreifikerfinu verður haldið áfram vinnu við
hitaveitu til Skagastrandar og unnið að rannsóknum vegna hitaveitu til Hafnar.
Á síðasta ári var gefinn út skuldabréfaflokkur að upphæð 2.000 milljónir, en
ákveðið að selja ekki nema helming þeirrar upphæðar. Ekki hefur verið ákveðið
hvort fyrirtækið nýti sér heimild til sölu á öllum skuldabréfaflokknum á þessu
ári. 

 Á árinu 2013 er gert ráð fyrir að orkusala og dreifing aukist lítillega, sem
er í samræmi við þróun síðustu ára. 



Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna.      Helstu stærðir úr                                                      
          rekstri:                                                              
                              jan-des  jan-des  jan-des  jan-de  jan-de  jan-des
                                                            s       s           
                               2012     2011     2010     2009    2008    2007  
Rekstartekjur                  11.412   10.768    9.694   8.703   7.830    7.436
Rekstrargjöld                   8.428    8.547    7.907   6.973   6.851    6.947
Rekstrarhagnaður                2.984    2.221    1.787   1.731     979      489
Fjármunatekjur og              -1.282   -1.233       56  -1.804  -5.645     -544
 (fjármagnsgjöld)                                                               
Áhrif hlutdeildarfélags           180      189      802     331  -2.877     -178
Hagnaður/tap  fyrir skatta      1.882    1.177    2.646     257  -7.543     -233
Tekjuskattur                     -341     -164     -127     440     310       42
Hagnaður (Tap)                  1.541    1.014    2.518     697  -7.232     -191
Eignir samtals                 44.569   37.262   37.032  35.663  31.923   26.442
Eigið                          25.507   19.327   18.314  15.982  13.942   14.737
 fé                                                                             
Skuldir                        19.062   17.935   18.718  19.682  17.982   11.706
Handbært fé frá rekstri         3.257    2.779    2.067   1.847   1.150      885
Greidd vaxtagjöld                 630      623      842     749     901      409
EBITDA                          4.351    3.520    3.054   2.843   1.884    1.326
Vaxtaþekja                       6,91     5,65     3,63    3,80    2,09     3,24
Eiginfjárhlutfall               57,2%    51,9%    49,5%   44,8%   43,7%    55,7%



Ársreikningur RARIK 2012 var samþykktur á fundi stjórnar þann 26. febrúar 2013
og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll. 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma
528-9000.