|
|||
2011-08-22 11:42:35 CEST 2011-08-22 11:43:35 CEST REGULATED INFORMATION Landsvaki - FyrirtækjafréttirAfskráning Markaðsbréfa Landsbankans - meðallangraStjórn Landsvaka hf., rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingasjóða Landsbankans, hefur tekið ákvörðun um sameiningu verðbréfasjóðsins Markaðsbréf Landsbankans - meðallöng við verðbréfasjóðinn Sparibréf - meðallöng. Síðarnefndi sjóðurinn hefur eingöngu heimild til að fjárfesta í íslenskum ríkisskuldabréfum og kröfum á íslenska ríkið og hefur sama leyfilega meðallíftíma og Markaðsbréf Landsbankans - meðallöng. Þegar ákvörðun um sameiningu sjóðanna var tekin voru einungis ríkisskuldabréf/kröfur með ríkisábyrgð í verðbréfasjóðnum Markaðsbréf Landsbankans - meðallöng. Sameiningin var gerð með hagsmuni hlutdeildarskírteinishafa að leiðarljósi. Tilgangur rekstrarfélagsins með þessu var að ná fram auknu gagnsæi og auðvelda fjárfestum að gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem felst í fjárfestingum í sjóðum sem eru í stýringu hjá Landsvaka. Hlutdeildarskírteinishafar sjóðsins fengu bréf þann 26. apríl síðastliðinn þar sem þeim var tilkynnt um sameininguna. Sameiningin fór fram þann 20. maí síðastliðinn með flutningi allra verðbréfa í eigu Markaðsbréfa Landsbankans -meðallangra í Sparibréf Landsbankans - meðallöng. Eign hlutdeildarskírteinishafa fluttist sjálfkrafa yfir í Sparibréf Landsbankans - meðallöng og enginn kostnaður féll á hlutdeildarskírteinishafa við þessa aðgerð. Beiðni um afskráningu sjóðsins Markaðsbréf Landsbankans - meðallöng hefur verið send Kauphöll. Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Landsvaka hf. Ari Skúlason í síma 410-7406 |
|||
|