|
|||
2008-02-21 17:29:00 CET 2008-06-03 13:53:56 CEST REGLERAD INFORMATION Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir- Niðurstaða í útboði ríkisbréfa - RIKB 19 0226Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 19 0226 með hollensku sölufyrirkomulagi fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 14:00 í dag. Áætlað var að selja bréf í flokknum fyrir allt að 10.000 m.kr. að nafnverði. Alls bárust 76 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 32.030 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 10.000 m.kr. að nafnverði á 8,90% ávöxtunarkröfu. Ákveðið hefur verið að árlegir nafnvextir bréfanna verði 8,75%. |
|||
|