2009-05-29 11:34:09 CEST

2009-05-29 11:35:12 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Spölur ehf. - Ársreikningur

- Árshlutauppgjör 1. október 2008 til 31. mars 2009


• Tap Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. október 2008 til 31. mars 2009
  nam kr. 238 m.kr. en tap á tímabilinu 1. október 2007 til 31. mars 2008 nam
  169 m.kr. Tap Spalar eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1.
  janúar 2009 til 31. mars 2009 nam 93 m.kr. Á sama tíma árið á undan var tap 
  félagsins 146 m.kr. Reikningsár Spalar er 1. október til 30. september ár
  hvert. Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. 

• Veggjald nam 344 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 397 m.kr.
  árið áður sem er 15,4% lækkun.

• Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam kr. 129
  m.kr. og lækkar um rúm 29,5% frá sama tímabili árinu áður þegar hann nam 167
  m.kr. Mismunurinn liggur nánast allur í gjaldfærslu á fyrra tímabili á
  undirbúningskostnaði vegna nýrra ganga, en þeirri vinnu lauk 
  að mestu í september 2008.

• Skuldir Spalar ehf aukast úr 4.361 m.kr. þann 30. september 2008 í 4.700 m.kr
  þann 31. mars 2009 eða um 7,8%.



Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, segir að umferð og tekjur séu í
samræmi við áætlanir félagsins. Gert hafi verið ráð fyrir nokkrum samdrætti í
umferð og tekjum, einkum fyrrihluta rekstrarársins. Jafn mikil hækkun
reikningslegra gjaldfærslna, einkum vegna hækkunar lána út af vísitöluhækkunum
var ekki fyrirséð. 

Á þessu 6 mánaða tímabili fóru tæplega 792 þúsund ökutæki um göngin sem greiddu
veggjald sem er 6,1% minnkun frá sama tímabili árið áður.

Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin fara sífellt lækkandi, bæði að
nafnverði og raunverði. Skýringin er sú að fleiri og fleiri viðskiptavinir nýta
sér afsláttarmöguleika og veggjaldið hefur lækkað talsvert á síðustu árum. 

_____________________________________________________________________
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma
433 5910.