2020-01-21 16:04:02 CET

2020-01-21 16:04:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Origo - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Origo hf. – Fjárfestakynning 30. janúar 2020 í ráðstefnusal félagsins kl. 08:30.


Reykjavík, 21. janúar 2020

Origo hf. heldur kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna ársuppgjörs félagsins fyrir árið 2019 fimmtudaginn 30. janúar næstkomandi.

Á fundinum mun Finnur Oddsson forstjóri kynna rekstur og afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningin fer fram í ráðstefnusal Origo á 1. hæð, að Borgartúni 37 og hefst klukkan 08:30.

Hægt verður að fylgjast með netstreymi af fundinum, sem má nálgast hér :

https://www.origo.is/fjarfestakynning/


Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is