2008-12-05 14:42:12 CET

2008-12-05 14:42:45 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Upplýsingar um fjármögnun Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. ("Straumur")



5. desember 2008

Straumur hefur í dag lokið fjármögnun á 133 milljónum evra.
Fjármögnunin bætir lausafjárstöðu bankans og verður nýtt til að
endurgreiða sambankalán að upphæð 200 milljónir evra sem gjaldfellur
9. desember næstkomandi. Gjalddagi þessarar nýju fjármögnunar er 15.
maí 2009. Straumur telur að í kjölfar þessa geti bankinn haldið áfram
að standa við allar sínar fjárhagslegu skuldbindingar.

Willam Fall, forstjóri Straums: "Þessi fjármögnun er mikilvægur
áfangi fyrir Straum sérstaklega í ljósi núverandi markaðsaðstæðna.
Þetta er ennfremur jákvætt skref fyrir íslenskan fjármálamarkað í
ljósi þeirra erfiðleika sem Ísland hefur staðið frammi fyrir
undafarna mánuði. Straumur mun, í samræmi við áður yfirlýsta stefnu,
halda áfram að byggja upp alhliða fjárfestingabanka ásamt því að
draga úr efnahagsreikning sínum og viðhalda fjárhagslegum styrk".

Nánari upplýsingar veitir:
Georg Andersen
Forstöðumaður Samskiptasviðs
netfang: georg@straumur.com
sími: 858 6707 / 585 6707