2012-01-19 17:45:13 CET

2012-01-19 17:46:14 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvaki - Fyrirtækjafréttir

Nafna- og reglubreyting Markaðsbréfa langra


Stjórn Landsvaka hf. sem rekur verðbréfasjóðinn Markaðsbréf löng (ISIN:
IS0000006278, auðkenni: LBR MARKB4) hefur tekið ákvörðun um nafna- og
reglubreytingu sjóðsins. Fjármálaeftirlitið hefur staðfest breytingarnar. 

Í breytingunum felst eftirfarandi:

  -- Nafni sjóðsins er breytt úr Markaðsbréf löng í Markaðsbréf.
  -- Lagatilvísanir eru uppfærðar með hliðsjón af nýjum lögum um verðbréfasjóði,
     fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði nr. 128/2011.
  -- Meðallíftími er nú ekki takmarkaður við tiltekinn árafjölda.
  -- Gerðar eru breytingar á ákvæði um þóknun þannig að nú er tilgreindur beinn
     útlagður kostnaður vegna rekstrar sjóðsins sem ekki er innifalinn í
     umsýsluþóknun félagsins. Um er að ræða kostnað vegna Kauphallar,
     fjármálakerfa annarra en eignastýringarkerfis, áskriftar að
     verðbréfavísitölum, hugbúnaðar, lögfræðikostnaðar og kostnaðar við prentun
     útboðslýsinga og ársreikninga.
  -- Breytingar eru gerðar á fjárfestingarstefnu þannig að áhersla er aukin á
     eignir aðrar en ríkisskuldabréf og heimildir hvað varðar innlán eru auknar.
     Fjárfestingarstefna sjóðsins er nú:
     -- Skuldabréf, peningamarkaðsgerningar og aðrar kröfur með ábyrgð íslenska
        ríkisins, 20-80%.
     -- Skuldabréf og peningamarkaðsgerningar með ábyrgð íslenskra
        sveitarfélaga, 20-60%.
     -- Skuldabréf og peningamarkaðsgerningar með ábyrgð fjármálafyrirtækja,
        0-40%.
     -- Skuldabréf og peningamarkaðsgerningar með ábyrgð annarra fyrirtækja,
        0-20%.
     -- Innlán, 0- 60%.
     -- Afleiður vegna stöðutöku, 0-10%.

Breytingarnar taka gildi þann 14. febrúar næstkomandi.

Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Landsvaka hf. Ari Skúlason í síma
410-7406.