|
|||
![]() |
|||
2015-12-16 11:29:13 CET 2015-12-16 11:29:13 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR REG3A fjármögnun - FyrirtækjafréttirREG3A fjármögnun : Breyting á undirliggjandi veðandlagi, samþykki skuldabréfaeigendaSamkvæmt útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins REG3A 14 1 er útgefanda flokksins, REG3A fagfjárfestasjóði, kt. 431213-9900, heimilt að leyfa Reginn atvinnuhúsnæði ehf., kt. 521009-1010, að skipta út eignum í undirliggjandi veðandlagi lánssamnings milli útgefanda og Regins atvinnuhúshæðis. Undir liðnum sérstök skilyrði d) í útgáfulýsingu REG3A 14 1 kemur eftirfarandi fram: "Í lánssamningi útgefanda við Regin atvinnuhúsnæði ehf. kemur fram að Regin atvinnuhúsnæði ehf. geti selt eignir sem standa til tryggingar með samþykki útgefanda svo lengi sem önnur veð koma í staðinn, skv. skilmálum. Fari svo að Reginn atvinnuhúsnæði ehf. óski eftir því að selja fasteignir úr veðandlaginu skal útgefandi ekki samþykkja slíka sölu nema með fyrirfram samþykki 75% skuldabréfaeigenda ef eitt eða fleiri af eftirfarandi skilyrðum eru til staðar: I. Reginn atvinnuhúsnæði ehf. hefur selt a.m.k. tvær fasteignir úr veðandlaginu síðastliðna 12 mánuði. II. Reginn atvinnuhúsnæði ehf. hefur selt samanlagt 20% eða meira af virði veðandlagsins eða fyrir séð að umrædd sala leiði til þess. Virði veðandlagsins er skilgreint í lánssamningi. III. Um er að ræða sölu innan samstæðu Regins hf. " Reginn atvinnuhúsnæði hefur óskað eftir því að selja fasteignirnar við Brúarvog 1-3, fnr. 230-9730 og Rofabæ 39, fnr. 204-5264, báðar í Reykjavík, úr undirliggjandi veðandlagi en samanlagt uppreiknað matsvirði eignanna er um 2.177 m.kr. (14% af veðandlagi). Reginn atvinnuhúsnæði ehf. hefur óskað eftir því að í staðinn komi eftirfarandi eignir að veði: Eign Staður Fastanúmer Virði Matsaðili ------------------------------------------------------------------------- Hlíðarsmári 1 Kópavogur 225-5456 942.000.000 PWC Íshella 8 Hafnarfirði 225-4142 876.000.000 PWC Dvergshöfði 2 8 hæð Reykjavík 229-9867 100.500.000 Kaupverð 2015* Tryggvagata 11 Reykjavík 225-0011 105.000.000 Kaupverð 2015* Austurvegur 10 Selfossi 224-0572 66.000.000 PWC Bæjarhraun 22 2.-3.h. Hafnarfirði 225-0150 105.000.000 PWC " 225-0151 " 225-0152 " 225-0153 ------------------------------------------------------------------------- Samtals 2.194.500.000 * staðfest af fasteignasala Þar sem liður I hér að ofan á við, þ.e. fleiri en tveim eignum skipt út á 12 mánaða tímabili, óskar REG3A fagfjárfestasjóður eftir samþykki skuldabréfaeigenda REG3A 14 1 á ofangreindum breytingum á veðandlagi. Tilkynnt verður þegar samþykki fjárfesta liggur fyrir og REG3A fjármögnun hefur samþykkt söluna. Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA sjóðir hf. í síma 510-1090. [HUG#1974031] |
|||
|