|
|||
![]() |
|||
2015-12-16 12:14:44 CET 2015-12-16 12:14:44 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirCORRECTION: Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboðiLeiðrétting: Heildarstærð LSS55 eftir útboð er 639.000.000 en ekki 639.000.000.000 eins og sagði í fyrri tilkynningu. Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 og LSS151155 þann 15. desember 2015. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 18. desember 2015. Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.390.000.000 á bilinu 3,05% - 3,25%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 660.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,15%. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í LSS150434 fyrir ISK 62.000.000. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150434 nemur því að nafnvirði ISK 722.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,15%. Útistandandi fyrir voru ISK 19.419.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 20.141.352.565. Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.000.000.000 á bilinu 3,02% - 3,20%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 425.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,10%. Að þessu sinni var orðið við beiðni aðalmiðlara um kaup á ISK 34.000.000 til viðbótar í LSS151155. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS151155 nemur því að nafnvirði ISK 459.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,10%. Útistandandi fyrir voru ISK 180.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 639.000.000. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|