2013-10-23 10:47:55 CEST

2013-10-23 10:48:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2014


Rekstur heldur áfram að batna

Rekstur Kópavogsbæjar heldur áfram að batna og er gert ráð fyrir að
rekstrarafgangur verði um 642 milljónir króna á næsta ári. Þetta kemur fram í
tillögu að fjárhagsáætlun ársins 2014 sem meirihlutinn lagði fram til fyrri
umræðu á fundi bæjarstjórnar í dag. Þar er lagt til að fasteignaskattur á
íbúðarhúsnæði verði lækkaður annað árið í röð og að skuldir verði áfram
lækkaðar um rúma tvo milljarða að teknu tilliti til verðbóta. 



Í áætluninni er gert ráð fyrir að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækki úr
0,29% í 0,27% eða um tæp 7%. Þessi sami skattur var lækkaður um 9,4% á þessu
ári. Einnig er lagt til að vatnsskattur lækki, sömuleiðis annað árið í röð, og
nú úr 0,12% af fasteignamati í 0,10%. Þetta þýðir svo dæmi sé tekið að
fasteignagjöld á 134 fermetra íbúð lækka í krónum talið um rúmlega 30 þúsund
krónur frá álagningarárinu 2012, miðað við fasteignamat ársins 2014. Aðrir
skattar og gjöld verða óbreytt á milli ára eða hækka í samræmi við vísitölu
fjárhagsáætlunarinnar. 



Lækkun skulda á næsta ári er í takt við þá stefnu síðustu ára að leggja megin
áherslu á niðurgreiðslu lána. Samkvæmt áætluninni verður skuldahlutfallið,
þ.e.a.s. skuldir á móti rekstrartekjum, í lok næsta árs 189% en í
sveitarstjórnarlögum er miðað við að sveitarfélög að hafa náð skuldahlutfallinu
niður fyrir 150% í janúar 2023. Samkvæmt langtímaáætlun Kópavogsbæjar næst
þetta hlutfall á árinu 2017, eða mun fyrr en lögin krefja. 



Heildarútgjöld bæjarins verða skv. áætluninni 21,4 milljarðar króna á næsta ári
en tekjur 22 milljarðar. Veltufé frá rekstri verða rúmir þrír milljarðar króna
en það sýnir getu bæjarins til framkvæmda og niðurgreiðslu lána. Á næsta ári
eru fyrirhugaðar nauðsynlegar framkvæmdir á borð við  stækkun Hörðuvallaskóla, 
að klára nýjan leikskóla í Austurkór og þjónustuíbúðir fyrir fatlaða, svo dæmi
séu nefnd. 



Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands er höfð til hliðsjónar við gerð áætlunarinnar en
spáin gerir ráð fyrir 3% verðbólgu á árinu 2014. 



Nánari upplýsingar veitir: Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri