|
|||
![]() |
|||
2017-08-10 18:04:07 CEST 2017-08-10 18:04:07 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA HB Grandi hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarHB Grandi selur frystitogaraHB Grandi hefur selt Þerney RE 1 til Suður Afríku og verður hún afhent nýjum eigendum 15. nóvember næstkomandi. Kaupandinn er Sea Harvest Corporation (Pty) Ltd sem er öflugt félag í útgerð og vinnslu og er söluverðið 13,5 milljónir USD eða 1,4 milljarðar ÍKR. Tvöföld áhöfn er nú á Þerney, en 27 eru í áhöfn hverju sinni. HB Grandi mun aðstoða þá í áhöfn Þerneyjar sem ekki komast í pláss á öðrum skipum félagsins við atvinnuleit eins og kostur er. Þerney RE 1 er frystitogari og er aflinn flakaður og frystur um borð. Þerney var smíðuð árið 1992 í Noregi og hefur verið gerð út af HB Granda frá því hún kom til landsins 1993.
|
|||
|