2012-08-31 19:32:47 CEST

2012-08-31 19:33:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Interim information (is)

Árshlutareikningur Hampiðjunnar fyrir fyrstu 6 mánuði 2012


Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga

  -- Rekstrartekjur jukust um 20% og voru 23,9 milljónir (20,0 milljónir).
  -- Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) var 4,2 milljónir (3,4 milljónir).
  -- Hlutdeild í afkomu HB Granda var 158 þúsund til gjalda (1,4 milljónir til
     tekna).
  -- Hagnaður tímabilsins var 2,2 milljónir (2,6 milljónir).
  -- Heildareignir voru 80,8 milljónir (79,5 milljónir).
  -- Vaxtaberandi skuldir voru 24,5 milljónir (25,7 milljónir).
  -- Eiginfjárhlutfall var 59% (58%).





Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 23,9 milljónir og jukust um 20% frá fyrstu sex
mánuðum fyrra árs.  Rekstrarhagnaður var 14% af rekstrartekjum eða 3,3
milljónir en var 12,7% í fyrra eða 2,5 milljónir. 

Fjármunatekjur ásamt hlutdeild í tapi HB Granda, að frádregnum
fjármagnsgjöldum, voru 622 þúsund til gjalda en voru 430 þúsund til tekna á
fyrra ári. 

Hagnaður tímabilsins var 2,2 milljónir en var 2,6 milljónir sama tímabil fyrra
árs. 



Efnahagur

Heildareignir voru 80,8 milljónir í árslok.  Eigið fé nam 47,4 milljónum, en af
þeirri upphæð eru 5,6 milljónir hlutdeild minnihluta í eigin fé tveggja
dótturfélaga (Swan Net Gundry á Írlandi og Fjarðanetum á Íslandi).  Hlutfall
eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í árslok 59% af
heildareignum samstæðunnar. 

Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 24,5 milljónum og lækkuðu um 1,2 milljónir
frá ársbyrjun. 



Jón Guðmann Pétursson, forstjóri:

„Sala og afkoma Hampiðju samstæðunnar var mun betri fyrrihluta ársins en hún
var á sama tíma í fyrra, ef frá eru talin umskipti í hlutdeildarafkomu frá HB
Granda.  Söluaukningin er tilkomin vegna aukinnar sölu ofurkaðla til
olíuiðnaðar og aukningar í sölu veiðarfæra á okkar helstu mörkuðum, þ.e.
Íslandi, Írlandi og í Danmörku.  Þó svo verkefnastaðan sé víðast hvar ágæt er
seinni hluti ársins yfirleitt lakari hjá okkur en fyrri hlutinn og útlit fyrir
að sú verði einnig raunin á þessu ári.“ 



Árshlutareikningurinn er á heimasíðu Hampiðjunnar hf.,  www.hampidjan.is.