|
|||
2024-05-31 23:35:00 CEST 2024-05-31 23:35:01 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - InnherjaupplýsingarÍslandsbanki hf. lýkur máli sem hófst árið 2022 sem úttekt á peningaþvættisvörnum með samkomulagi um sátt og greiðir 570 milljón króna sekt til ríkissjóðsHaustið 2022 gerði fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands vettvangsathugun sem laut að vörnum Íslandsbanka hf. (bankinn) samkvæmt lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (peningaþvættisvarnir). Í kjölfar hennar tilgreindi fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands bankanum um tiltekna annmarka á vörnum bankans. Íslandsbanki greindi frá þessu í uppgjöri bankans fyrir þriðja ársfjórðung 2023. Þá kom fram að bankinn hefði ekki andmælt niðurstöðu fjármálaeftirlitsins, og að málinu gæti lokið með sátt og greiðslu sektar. Í ársuppgjöri 2023 tilkynnti bankinn að hann hefði fært til gjalda ótilgreinda skuldbindingu í tengslum við málið. Stjórn bankans hefur tekið ákvörðun um að þiggja sáttarboð fjármálaeftirlitsins vegna málsins sem barst bankanum síðdegis í dag. Með sáttinni fellst bankinn á það mat fjármálaeftirlitsins að brotin hafi verið mörg og varðað marga grundvallarþætti í aðgerðum gegn peningaþvættisvörnum. Þá teljist brotin alvarleg og nokkur brot ítrekuð frá fyrri athugun fjármálaeftirlitsins á fylgni bankans við lögin sem fór fram árið 2021. Jafnframt skuldbindur bankinn sig til þess að gera viðeigandi úrbætur. Brot bankans varða áhættumat hans á starfsemi sinni vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka, áhættumat á samningssamböndum og einstökum viðskiptum, framkvæmd áreiðanleikakannana, framkvæmd áreiðanleikakannana hjá erlendum fjármálafyrirtækjum, framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana og reglubundið eftirlit með viðskiptum og viðskiptamönnum þar með talið skráningu og rekjanleika reiðufjárviðskipta. Á öðrum ársfjórðungi 2024 mun Íslandsbanki gjaldfæra 470 milljónir króna vegna þessa atburðar en bankinn gjaldfærði 100 milljónir króna vegna málsins í ársuppgjöri 2023. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands mun birta sáttina í heild sinni á vefsíðu sinni. Íslandsbanki tekur undir mikilvægi málaflokksins og leggur áherslu á traustar varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Bankinn hefur ráðist í umfangsmiklar úrbætur í samstarfi við erlent ráðgjafafyrirtæki þar sem stjórnskipan og verklag bankans hafa verið endurbætt. Ráðist hefur verið í miklar fjárfestingar í innviðum og tæknilausnum, auk þess sem aukin áhersla hefur verið lögð á málaflokkinn hjá stjórnendum bankans. Íslandsbanki mun halda áfram að þróa og styrkja peningaþvættisvarnir bankans. Frekari upplýsingar veita: Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi athugun fjármálaeftirlitsins sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055. |
|||
|