|
|||
2009-11-12 17:43:58 CET 2009-11-12 17:46:48 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - FyrirtækjafréttirNýr samningur um viðskiptavakt við Nýja KaupþingFréttatilkynning frá Össuri hf. 12. september 2009, GMT: 16:30 Nýr samningur um viðskiptavakt við Nýja Kaupþing Össur hf. hefur gert nýjan samning við Nýja Kaupþing Banka hf. um viðskiptavakt sem er endurnýjun á fyrri samningi frá febrúar 2005. Þessi samningur er einungis vegna skráningar félagsins á Íslandi. Samkvæmt samningnum mun Nýja Kaupþing sjá um markaðsvakt á bréfum félagsins á NASDAQ OMX á Íslandi. Nýja Kaupþing mun setja fram kaup- og sölutilboð alla viðskiptadaga í viðskiptakerfi NASDAQ OMX á Íslandi. Upphæð hvers tilboðs skal að lágmarki vera 20.000 hlutir á gengi sem Nýja Kaupþing ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur milli kaup- og söluverðs má ekki fara yfir 2,0% og breyting frá síðasta verði skal ekki vera meira en 3,5%. Nýja Kaupþing ber skyldu til að bjóða allt að 100.000 hluti á hverjum viðskiptadegi. Samningnum er ætlað að auka viðskipti með hlutabréf Össurar í kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi og stuðla að skilvirkri og gegnsærri verðmyndun á hlutabréfum félagsins. Nánari upplýsingar veita: Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044 |
|||
|