|
|||
2010-11-02 13:12:03 CET 2010-11-02 13:13:01 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumNýr framkvæmdastjóri ÍbúðalánasjóðsStjórn Íbúðalánasjóðs hefur ráðið Sigurð Erlingsson sem framkvæmdastjóra sjóðsins. Sigurður er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði frá Andrews University í Bandaríkjunum (1994), löggiltur verðbréfamiðlari (1998), með M.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál (2003) og MBA frá Háskólanum í Reykjavík (2010). Sigurður starfaði hjá Landsbanka Íslands hf. frá 2000-2008, fyrst sem sérfræðingur í greiningardeild og síðar sem forstöðumaður á Alþjóðasviði bankans. Frá 2008 starfaði Sigurður sem verkefnastjóri og sérfræðingur í fjárhagslegri endurskipulagningu stærri fyrirtækja hjá NBI hf. Fyrir þann tíma starfaði Sigurður sem millistjórnandi á fjármálasviðum nokkurra fyrirtækja. Sigurður hefur verið stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og við Stjórnendaskóla HR frá 2001. Sigurður er giftur Nönnu Guðnýju Sigurðardóttur sjúkraþjálfara og saman eiga þau einn son. Sigurður mun hefja störf hjá Íbúðalánasjóði á næstu dögum. |
|||
|