2009-01-14 13:00:16 CET

2009-01-14 13:01:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga - Fyrirtækjafréttir

- Áætlun Lánasjóðs sveitarfélaga 2009 (um útlán, greiðslur og útgáfu skuldabréfa)


Áætluð útgáfa skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga árið 2009 til fjármögnunar
nýrra útlána er 12 - 24 milljarðar króna. 

Lánasjóður sveitarfélaga áætlar að ný útlán sjóðsins verði á bilinu 12 - 24
milljarðar króna á árinu 2009, sem er nokkur lækkun frá áætlunum ársins 2008. 


Útboð skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga

Áætlun 2009         1.H      2.H      Alls 2009
Útgáfa              8 - 12   8 -12    16 - 24
Afborganir lána     4 - 5    1 - 2    5 - 7   
Afborganir útlána   4 - 5    3 - 4    7 - 9

Tölur eru í milljörðum ISK.


Lánasjóður sveitarfélaga áætlar að greiða lánadrottnum sínum á bilinu 5 - 7
milljarða króna árið 2009.  Lánasjóðurinn áætlar að afborganir sveitarfélaga af
lánum til lánasjóðsins verði á bilinu 7 - 9 milljarðar króna árið 2009. 

Lánasjóður sveitarfélaga lánar eingöngu það fé sem hann hefur fengið að láni,
því veltur áætlun um útlán alfarið á því hvernig gengur að afla lánsfjár á
árinu. Þrátt fyrir að mörg sveitarfélög hafi enn ekki samþykkt fjárhagsáætlanir
fyrir 2009 þykir okkur ljóst er að töluverð ásókn verður í lánsfé frá sjóðnum
og augljóslega ekki útséð með hvort sjóðurinn nær að afla fjár til að mæta
öllum þeim óskum. 

Áætlun þessi miðast við núverandi aðstæður á markaði. Verði breytingar á
markaðsaðstæðum má reikna með að ofangreind áætlun geti breyst. Lánasjóður
sveitarfélaga endurskoðar áætlanir sínar hálfsárslega og oftar ef þörf krefur.