2016-09-15 19:10:16 CEST

2016-09-15 19:10:16 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska Enska
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf. : Landsbankinn nýtir heimild til kaupa á eigin hlutum í bankanum


Bankaráð  Landsbankans hefur ákveðið að nýta heimild  til kaupa á eigin hlutum í
bankanum  sem veitt var á aðalfundi  bankans 14. apríl 2016. Kaupin munu nema að
hámarki  480 milljónum hluta eða  sem nemur 2% af  útgefnu hlutafé. Tilgangurinn
með  endurkaupaáætluninni er að lækka eigið fé bankans og um leið gefa hluthöfum
kost  á að selja hluti sína í bankanum  með gagnsæjum hætti en hömlur á framsali
hlutanna féllu niður 1. september 2016.




Eiginfjárhlutfall   Landsbankans   er   28,6% sem   er  verulega  umfram  kröfur
eftirlitsaðila.  Bankinn hefur  lækkað eigið  fé með  því að greiða stóran hluta
hagnaðar  undanfarinna ára út sem arð.  Arðgreiðslur bankans á árunum 2013-2016
nema alls 82 milljörðum króna.

Landsbankinn  býðst  til  að  kaupa  hluti  af  hluthöfum  á eftirfarandi þremur
endurkaupatímabilum:[1]

  * 19. september 2016 - 30. september 2016
  * 31. október 2016 - 9. desember 2016
  * 13. febrúar 2017 - 24. febrúar 2017



Þeir hluthafar sem ákveða að nýta sér framangreint boð skulu senda Landsbankanum
tilkynningu  þar að lútandi og er eyðublað fyrir tilkynninguna aðgengilegt á vef
bankans.  Tilkynningar verða afgreiddar  á hverju tímabili  í þeirri röð sem þær
berast  bankanum þar til framangreindu hámarki (480 milljónir hluta) verður náð.
Verði hámarkinu náð á einhverju endurkaupatímabilanna verða frekari tilkynningar
því ekki afgreiddar, hvort sem það verður á fyrsta, öðru eða þriðja tímabilinu.

Í  samræmi við ákvörðun aðalfundar býðst Landsbankinn  til að kaupa hvern hlut á
framangreindum  endurkaupatímabilum á  gengi sem  samsvarar hlutfallinu  á milli
eigin  fjár  sem  tilheyrir  hluthöfum  bankans  og  hlutafjár bankans, samkvæmt
síðasta  birta  uppgjöri  áður  en  viðkomandi endurkaupatímabil hefst. Kaupverð
hlutanna  getur þannig tekið  breytingum milli endurkaupatímabila  í samræmi við
niðurstöður    árshlutauppgjörs    eða    ársuppgjörs    áður    en   viðkomandi
endurkaupatímabil hefst.

Samkvæmt  árshlutauppgjöri Landsbankans  fyrir fyrstu  sex mánuði ársins 2016 er
eigið  fé sem tilheyrir hluthöfum bankans 247.249.765.805 krónur og útistandandi
hlutafé 23.781.690.382 krónur. Í samræmi við framangreint býðst Landsbankinn því
til  að  kaupa  hvern  hlut  á  genginu  10,3966 á  fyrsta endurkaupatímabilinu.
Landsbankinn  hyggst birta árshlutareikning sinn  fyrir fyrstu níu mánuði ársins
2016 þann 27. október 2016 og ársreikning fyrir árið 2016 þann 9. febrúar 2017.
Bankinn  mun birta upplýsingar  um það verð  sem hann býðst  til að greiða fyrir
eigin  hluti  á  næsta  endurkaupatímabili  í  tengslum við uppgjörstilkynningar
sínar.  Tilkynningarnar  verða  birtar  á  vef  Landsbankans  og  í  fréttakerfi
kauphallarinnar.

Á  aðalfundi bankans þann 14. apríl 2016 var samþykkt að greiða 28.538 milljónir
króna  í arð vegna  reikningsársins 2015.[2] Um leið  var bankanum veitt heimild
til  kaupa á eigin hlutum. Heimildin gaf kost á að meta síðar á árinu hvort unnt
væri  að færa meira fé til eigenda, í ljósi aðstæðna. Góð afkoma bankans á þessu
ári veldur því að slíkt svigrúm er fyrir hendi. Kaup bankans á eigin hlutum koma
þannig til viðbótar við arðgreiðsluna og lækka eigið fé bankans.

Hluthafar í Landsbankanum

Við  stofnun Landsbankans 7. október 2008 lagði íslenska ríkið nýja bankanum til
775 milljónir  króna í  eigið fé  og síðar  121,2 milljarða króna til viðbótar í
formi  skuldabréfs með gjalddaga árið 2018, eða samtals 122 milljarða króna. Þar
með  eignaðist íslenska  ríkið 81,33% hlutafjár  í bankanum  en LBI hf. (slitabú
gamla  Landsbanka Íslands)  átti 18,67% hlut.  Í apríl  2013 gaf Landsbankinn út
skilyrt  skuldabréf til LBI að fjárhæð  92 milljarðar króna og við það framseldi
LBI  hluti  sína  í  bankanum  til  íslenska  ríkisins. Þar með fór eignarhlutur
ríkisins  í um  98%. Á sama  tíma eignuðust  þáverandi og fyrrverandi starfsmenn
Landsbankans  hluti í bankanum, sem áður voru  í eigu LBI, í samræmi við samning
íslenska  ríkisins, bankans  og LBI  frá 15. desember  2009. Á þeim  hlutum voru
kvaðir  um að  ekki mætti  framselja hlutina  fyrr en  1. september 2016 en gert
hafði  verið ráð fyrir  að búið yrði  að skrá hlutabréf  í bankanum á skipulegan
verðbréfamarkað  fyrir  þann  tíma.  Árið  2015 runnu Sparisjóður Norðurlands og
Sparisjóður  Vestmannaeyja  saman  við  Landsbankann  og  fengu  þá rúmlega 400
stofnfjáreigendur  endurgjald sem greitt var með  hlutum í Landsbankanum. Á þeim
hlutum voru samsvarandi hömlur á framsali.

Alls  eru  hluthafar  Landsbankans  1.833 talsins.  Íslenska  ríkið  er  stærsti
hluthafi  bankans og á 98,2% hlut. Bankinn á sjálfur 0,91% hlut. Þá eiga um 870
núverandi  starfsmenn bankans,  um 530 fyrrverandi  starfsmenn og  um 430 fyrrum
stofnfjárhafar  í tveimur sparisjóðum  samtals 0,89%. Bankaráðsmenn Landsbankans
eiga ekki hluti í bankanum.

Að  loknu hverju  endurkaupatímabili mun  Landsbankinn upplýsa  um heildarfjölda
seldra  hluta og hvort bankastjóri eða  framkvæmdastjórar hjá bankanum hafi selt
hluti í bankanum.

Landsbankinn mun senda hluthöfum bréf með upplýsingum um endurkaupaáætlunina.

Nánari  upplýsingar  veitir  Rúnar  Pálmason, upplýsingafulltrúi Landsbankans, í
síma 8993745.


--------------------------------------------------------------------------------

[1] Dagsetningar annars og þriðja endurkaupatímabils taka mið af áætlaðri
tímasetningu á birtingu fjárhagsuppgjöra bankans þann 27. október 2016 og 9.
febrúar 2017. Gerður er sá fyrirvari að þessar dagsetningar annars og þriðja
endurkaupatímabils kunna að breytast ef breytingar verða á tímasetningu á
birtingu fjárhagsuppgjöra bankans.



[2] Á aðalfundinum 14. apríl 2016 var samþykkt að greiða arð til hluthafa með
tveimur jöfnum greiðslum og var gjalddagi fyrri greiðslunnar 20. apríl 2016.
Gjalddagi seinni greiðslunnar er 21. september 2016 og miðast sú greiðsla við
hlutaskrá í lok 14. apríl 2016 nema bankanum berist tilkynning um að arður hafi
verið framseldur með framsali hlutabréfs. Þeir hluthafar sem selja hluti á
grundvelli endurkaupaáætlunarinnar munu við framsal hluta ekki framselja seinni
arðgreiðsluna sem tengist þeim hlutum og munu því halda rétti til seinni
arðgreiðslunnar þótt þeir selji hluti á fyrsta endurkaupatímabilinu.


[]