2011-05-18 12:34:48 CEST

2011-05-18 12:35:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Standard & Poor‘s lækkar lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar


Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar
í BB úr BB+ í kjölfar þess að fyrirtækið lækkaði lánshæfiseinkunn ríkissjóðs
fyrir innlendar skuldbindingar úr BBB í BBB- í gær. Horfurnar eru neikvæðar hjá
báðum aðilum. 

Hinn 17. maí síðastliðinn var lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir innlendar
skuldbindingar lækkuð um einn flokk í BBB-. Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar
tekur mið af breytingum á lánshæfiseinkunnum ríkissjóðs en einkunn
Landsvirkjunar hefur nú verið lækkuð um einn flokk í BB úr BB+. Á sama tíma
voru lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar teknar af athugunarlista og eru áfram
með neikvæðum horfum sem fyrr segir. 

Að mati Landsvirkjunar hefur þessi breyting ekki í för með sér áhrif á
núverandi skuldbindingar fyrirtækisins. Rekstur Landsvirkjunar er stöðugur og
allar helstu kennitölur og sjóðstreymi hafa batnað á undanförnum mánuðum. 



Nánari upplýsingar veitir:

Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs

s. 515 9000    sara@lv.is