2015-10-26 12:41:50 CET

2015-10-26 12:42:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Síminn hf. - Fyrirtækjafréttir

Síminn hf. - Niðurstaða héraðsdóms Reykjavíkur í máli Símans hf. gegn íslenska ríkinu


Hinn 13. desember 2013 tilkynnti Ríkisskattstjóri um endurákvörðun opinberra
gjalda Símans hf. og Skipta hf. fyrir árið 2008 á þeim grundvelli að vaxtagjöld
hefðu verið offærð í skattskilum. Um væri að ræða vaxtagjöld vegna lána sem
tekin höfðu verið vegna kaupa Skipta ehf. á Símanum hf. árið 2005. 

Síminn hf. höfðaði dómsmál gegn íslenska ríkinu til ógildingar á þessari
ákvörðun Ríkisskattstjóra með stefnu þingfestri 10. febrúar 2015.  Í dag
birtist niðurstaða Héraðsdóms í málinu þar sem íslenska ríkið var sýknað af
kröfu Símans hf. 

Síminn hf. bakfærði á árinu 2013 vaxtagjöld að fjárhæð 22,6 milljarðar króna
sem tengist ágreiningi við Ríkisskattstjóra. Með því voru að fullu leyti tekin
inn neikvæð áhrif á afkomu félagsins vegna framangreinds úrskurðar á því
tímabili sem var til skoðunar. Þar sem Síminn hf. hefur þegar tekið fullt
tillit til úrskurðar Ríkisskattstjóra í reikningsskilum félagsins hefur
dómurinn ekki áhrif á afkomu Símans hf. 

Síminn hf. hefur ekki ákveðið hvort dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar.