|
|||
2009-03-31 10:46:02 CEST 2009-03-31 10:47:07 CEST REGULATED INFORMATION Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - Ársreikningur- Ársreikningur 2008Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500 millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti. Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til skuldareigenda. Í lok ársins 2008 námu eftirstöðvar lánsins 337,8 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. Breyting var gerð á reikningsskilaaðferðum sambandsins á árinu 2008 þannig að tekjur og gjöld vegna verkefna á vegum sambandsins eru nú færð í gegnum rekstrarreikning. Áður hafði verið haldið utanum stöðu verkefnanna eingöngu í gegnum efnahagsreikning og staða þeirra færð í gegnum rekstur þegar þeim var lokið. Samanburðatölum í ársreikningi hefur verið breytt til samræmis. Tekjuafgangur sambandsins á árinu 2008 nam rúmum 13 milljónum kr. og eigið fé í lok ársins 2008 nam 63,3 milljónum kr. samkvæmt ársreikningi. Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. Guðjón Guðmundsson er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu. |
|||
|