2011-09-06 18:58:06 CEST

2011-09-06 18:59:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Landsvirkjun gefur út skuldabréf til sjö ára


Landsvirkjun undirritaði í dag samning um sölu á skuldabréfum til sjö ára að
fjárhæð 63,2 milljónir Bandaríkjadollara eða að jafnvirði um 7,3 milljarðar
króna. Skuldabréfin eru seld á 4,3% ávöxtunarkröfu. Vextir greiðast einu sinni
á ári en höfuðstóllinn greiðist í einu lagi í lok lánstímans. Umsjónaraðili er
Arctica Finance hf. 

Samhliða útgáfunni hefur Landsvirkjun náð samkomulagi um fullnaðaruppgjör
gjaldmiðlavarnarsamninga við skilanefnd Landsbankans að fjárhæð 3,2 milljónir
Bandaríkjadollara. Landsvirkjun hafði tekið tillit til stöðu samninganna í
uppgjörum sínum frá 2007. 

Skuldabréfið er liður í almennri fjármögnun Landsvirkjunar og verður meðal
annars nýtt við fjármögnun framkvæmda á Norðausturlandi sem stefnt er að ráðast
í á næsta ári.  Með þessari útgáfu hefur fyrirtækið náð mikilvægum áfanga í
fjármögnun verkefna sem fyrirtækið hyggst ráðast í á næstu árum. 



Reykjavík, 6. september 2011

Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,
í síma 515-9010, netfang: rafnar@lv.is