2014-01-08 16:31:00 CET

2014-01-08 16:31:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 14 0415 og RIKV 14 0715


Mánudaginn 13. janúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 14 0415 og RIKV 14 0715 sem eru með gjalddaga 15.
apríl og 15. júlí 2014. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 15. janúar 2014.

Sótt verður um að RIKV 14 0715 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á
Íslandi fimmtudaginn 16. janúar 2014. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.