|
|||
2014-05-14 20:47:02 CEST 2014-05-14 20:48:02 CEST REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - FyrirtækjafréttirEimskip: Nýir samningar um viðskiptavaktEimskipafélag Íslands hf. hefur gert nýjan samning við Landsbankann hf. og endurnýjað samninga við Íslandsbanka hf. og Straum Fjárfestingabanka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru á NASDAQ OMX ICELAND. Helstu skilmálar samninganna eru eftirfarandi: Fjárhæð kaup- og sölutilboða hvers viðskiptavaka skal vera að lágmarki 50.000 hlutir á gengi sem hver viðskiptavaki ákveður. Frávik frá síðasta skráða viðskiptagengi skal ekki vera meira en 3%. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða er 1,5%. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er og eigi síðar en 10 mínútum eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmagn sem hver viðskiptavaki er skuldbundinn til að kaupa eða selja á hverjum degi er 400.000 hlutir. Nýir samningar taka gildi þann 15. maí nk., eru ótímabundnir en uppsegjanlegir með eins mánaðar fyrirvara. Frá sama tíma falla eldri samningar um viðskiptavakt úr gildi. |
|||
|