|
|||
![]() |
|||
2010-06-08 12:20:11 CEST 2010-06-08 12:21:08 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirÍbúðalánasjóður - VaxtaákvörðunSamkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 með síðari breytingum og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 7. júní s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,68%. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur lagt það til við félags- og tryggingamálaráðherra að hækka vaxtaálag sjóðsins um 0,15% og hefur ráðherra fallist á þá tillögu. Við breytingarnar verður vaxtaálag vegna rekstrar 0,40%, vegna útlánaáhættu 0,40% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%. Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðsins á íbúðabréfum og í samræmi við ofangreinda breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir og verði því sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,50% og 5,00% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Þessi ákvörðun tekur gildi í dag, 8. júní 2010. |
|||
|