2013-12-23 09:49:24 CET

2013-12-23 09:50:25 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn fyrirframgreiðir skuldabréf að hluta


Landsbankinn hf. mun í dag  að eigin frumkvæði greiða fyrirfram inn á skuld
sína við LBI hf. Greiðslan verður innt af hendi í erlendri mynt og jafngildir
um 50 milljörðum króna. 

Greiðslan gengur inn á höfuðstól skuldabréfanna og lækkar hlutfallslega
greiðslubyrði bankans vegna þessarar skuldar sem á að koma til greiðslu á
árunum 2014 til 2018.  Fyrsti umsamdi gjalddagi skuldabréfanna er í janúar 2014
og sá síðasti í október 2018. 

Sterk lausafjárstaða Landsbankans í erlendri mynt gerir honum kleift að lækka
skuld sína í erlendri mynt hraðar en samningar kveða á um. Fjármagnskostnaður
bankans mun lækka vegna þessarar fyrirframgreiðslu og um leið verður dregið
verulega úr veðsetningu á eignum bankans. Lausafjárhlutfall  bankans í erlendri
mynt verður áfram hátt og mun standast að fullu nýjar kröfur Seðlabanka Íslands
þar að lútandi. 

Landsbankinn mun áfram þurfa á endurfjármögnun að halda áður en kemur að
gjalddögum skuldabréfanna árið 2016. Eins og fram kom í tilkynningu bankans 3.
október síðastliðinn á bankinn í viðræðum við LBI hf. um breytingar á 
skilmálum skuldabréfanna, þar með talið lengingu á lánstíma þeirra. 



Nánari upplýsingar veitir:

Kristján Kristjánsson, pr@landsbankinn.is, 899 9352 eða 410  4011