2007-04-02 12:13:20 CEST

2011-09-13 13:14:45 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Minutes of annual general meeting (is)

Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar


Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 30. mars, var skýrsla stjórnar og
ársreikningur fyrir árið 2006 samþykkt samhljóða. 

Sjálfkjörið var í félagsstjórn.

Formaður félagsstjórnar:
Bragi Hannesson

Meðstjórnendur:
Árni Vilhjálmsson
Jón Guðmann Pétursson
Kristján Loftsson 
Sigurgeir Guðmannsson 

Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar samhljóða:  

1.	Tillaga um greiðslu arðs.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að greiddur verði 10% arður, alls að
fjárhæð kr. 50 milljónir, vegna rekstrarársins 2006 til þeirra hluthafa sem
skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok dags 30. mars 2007.  Arðurinn verði
greiddur út í viku 17. 

2.	Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið
ár verði kr. 600.000, formaður taki þrefaldan hlut. 

3.	Tillaga um endurskoðunarfélag.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. kýs PricewaterhouseCoopers hf. endurskoðunarfélag
félagsins. 

4.	Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. veitir stjórn félagsins heimild til þess að kaupa
eigin hluti í félaginu.   Heimild þessi standi í 18 mánuði og takmarkist við að
samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. 
Kaupverð hluta skal vera hæst 15% yfir síðasta þekktu söluverði á First North
markaðinum áður en kaup eru gerð. 

5.	Tillaga um starfskjarastefnu.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir eftirfarandi starfskjarastefnu fyrir
félagið, sem stjórn þess hefur samþykkt, í samræmi við 79. gr. a. í lögum nr.
2/1995 um hlutafélög. 

Hampiðjan hefur það markmið að búa vel að starfsmönnum sínum og tryggja þeim
eðlilegan afrakstur vinnu sinnar.  Starfskjarastefna félagsins hefur að
markmiði að gera félaginu kleift að laða til sín og halda í hæft starfsfólk,
ekki síst það, sem ber meginábyrgð á stjórnun og þróun félagsins. 

Auk fastra launa er heimilt að veita stjórnendum og starfsmönnum kaupauka,
fríðindi og/eða annars konar umbun.  Með kaupauka er átt við greiðslur sem
byggja á árangri einstakra stjórnenda eða starfsmanna í starfi.  Greiðsla
slíkra kaupauka tengist ýmist árangri viðkomandi starfsmanns, þeirrar deildar
er hann starfar innan eða alls félagsins. 

Þá getur stjórn Hampiðjunnar samið við stjórnendur um árangurstengdan kaupauka
sem tengist verðmætaaukningu útgefins hlutafjár félagsins á hlutabréfamarkaði. 
Samningar um slíka kaupauka skulu þó ekki vera hærri en sem nemur samtals 5% af
mögulegri verðmætaaukningu útgefins hlutafjár.  Gera skal grein fyrir slíkum
samningum í ársreikningi félagsins. 

Stefna félagsins er að gera ekki kaupréttarsamninga við stjórnendur á
hlutabréfum í félaginu.  Engir slíkir samningar eru í gildi. 

Gera skal skriflegan ráðningarsamning við forstjóra félagsins og skulu kjör
hans vera samkeppnishæf.  Fjárhæð grunnlauna og annarra greiðslna skal taka mið
af menntun, reynslu og fyrri störfum.  Tilgreina skal önnur starfskjör í
ráðningarsamningi, svo sem greiðslur í lífeyrissjóð, orlof, hlunnindi og
uppsagnarfrest.  Við gerð ráðningarsamnings við forstjóra skal haft að
leiðarljósi að ekki komi til frekari greiðslna við starfslok forstjóra en fram
koma í ráðningarsamningi.  Heimilt er þó við sérstök skilyrði að mati stjórnar
að gera sérstakan starfslokasamning við starfslok forstjóra. Skv. núgildandi
ráðningarsamningi forstjóra á hann kost á kaupauka sem nemur 4% af
verðmætaaukningu útgefins hlutafjár félagsins á hlutabréfamarkaði, umfram það
sem viðskiptagengið 8,0 gefur. 

Stjórnendum eða starfsmönnum er ekki veitt umtalsverð lán nema í
undantekningartilfellum og þá skal það gert með samþykki stjórnar.  Engin slík
lán eru útistandandi. 

Hampiðjan hefur þá stefnu að gera ekki eftirlaunasamninga við stjórnendur og
eru engir slíkir samningar í gildi. 
Hampiðjan hefur þá stefnu að gera ekki sérstaka starfslokasamninga við
starfsmenn sem veitir þeim fjárhagslega umbun umfram það sem ráðningarsamningar
eða almennir kjarasamningar kveða á um. 

Stjórnarmenn njóta ekki annarra þóknunargreiðslna frá hendi félagsins en
árlegra stjórnarlauna, sem aðalfundur samþykkir hverju sinni og hafa engin
réttindi sem kveðið er á um í 1-5. tl. 79. gr. a. nr. 2/1995. 

Starfskjarastefnan er bindandi fyrir stjórn félagsins að því er varðar ákvæði
um kaupréttarsamninga og greiðslu kaupauka er fylgja þróun verðs á hlutabréfum
í félaginu, sbr. 2. mgr. 79. gr. a. hlutafélagalaga.  Að öðru leyti er
starfskjarastefnan leiðbeinandi fyrir félagið og stjórn þess. Stjórn félagsins
skal færa til bókar í fundargerðarbók veigamikil frávik frá
starfskjarastefnunni og skal gera grein fyrir þeim á næsta aðalfundi félagsins.