|
|||
2011-05-17 16:04:23 CEST 2011-05-17 16:05:24 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - Ársreikningurársreikningur 2010 - Góður viðsnúningur í rekstri ReykjavíkurborgarRekstrarniðurstaða samstæðu jákvæð um 13.671 mkr árið 2010 Ársreikningur Reykjavíkurborgar var lagður fram á fundi borgarstjórnar í dag. Þar kemur fram að afkoma borgarsjóðs var mun betri á síðasta ári en áætlanir gerðu ráð fyrir. Viðsnúningur í rekstri borgarinnar er umtalsverður. Er rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B- hluta, jákvæð um 13.671 mkr. Rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs, sem hefur með hinn almenna rekstur borgarinnar að gera, var jákvæð um 803 mkr en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 2.369 mkr. Niðurstaðan var því um 3.171 mkr betri en áætlað var. Þetta skýrist einkum af því að skatttekjur voru umfram áætlun, gjaldfærsla vegna breytingar lífeyrisskuldbindingar og húsaleigubætur voru undir áætlun og fagsviðin héldu sig innan fjárheimilda að mestu þrátt fyrir þungar hagræðingarkröfur. Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs var jákvæð um 670 mkr, en áætlun gerði ráð fyrir 2.264 mkr hagnaði . Frávik frá áætlun er því 1.594 mkr, sem skýrist einkum af niðurfærslu krafna að fjárhæð 1.147 mkr og breyttum reikningsskilaaðferðum vegna leiguskuldbindinga sem ekki var áætlað fyrir. Viðbótargjaldfærslur vegna þeirra nema 420 mkr. Rekstrarniðurstaða A-hluta, sem er sameiginleg niðurstaða fyrir Aðalsjóð og Eignasjóð, var því jákvæð um 1.472 mkr en endurskoðuð áætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 105 mkr. Niðurstaðan er því 1.577 mkr betri en gert var ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 218 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.855 mkr. Niðurstaðan var því 1.637 mkr betri en áætlun gerði ráð fyrir. Góða afkomu A-hluta má einkum rekja til hærri útsvarstekna en áætlaðar voru sem skýrist af meiri launahækkunum og áhrifum úttektar á séreignarsparnaði. Þá voru tekjur af fasteignagjöldum vanáætlaðar um rúmlega 800 mkr þar sem álagningarstofn lá ekki fyrir við gerð áætlunar. Rekstrarútgjöld reyndust hins vegar um 1.100 mkr hærri en áætlað var. Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 13.671 mkr árið 2010 en árið 2009 var hún neikvæð um 1.650 mkr. Þessi viðsnúningur skýrist einkum af auknum tekjum A-hluta og gengishagnaði í samstæðunni. Fjármagnsliður var neikvæður um 12.655 mkr árið 2009 en er nú jákvæður um 10.505 mkr. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar jókst á milli ára, fer úr 26,4% árið 2009 í 30,8% árið 2010. Skuldsetningarhlutfall fer úr 239% árið 2009 í 191% árið 2010. Nánari upplýsingar veitir Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, í síma 693 9321. |
|||
|