2016-12-20 20:30:49 CET

2016-12-20 20:30:49 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Reykjanesbær - Ársreikningur

Reykjanesbær semur við kröfuhafa



                                                        Reykjanesbæ, 20.12.2016.



Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar var afgreidd að lokinni síðari umræðu á
bæjarstjórnarfundi fyrr í kvöld. Undanfarin misseri hefur verið unnið að
endurskipulagningu fjármála Reykjanesbæjar og hefur sveitarfélagið m.a. átt í
viðræðum við helstu kröfuhafa sína með það að markmiði að endurskipuleggja
efnahagsreikning samstæðu A og B hluta sveitarfélagsins. Viðræður hafa nú
skilað árangri með að skilmálar samkomulags liggja fyrir við lánveitendur
Eignarhaldsfélagsins Fasteignar, sem nú er alfarið í eigu Reykjanesbæjar, en
viðræðum við kröfuhafa Reykjaneshafnar er ólokið. Má segja að með þessu sé
Reykjanesbær að rétta úr kútnum og bæjaryfirvöld horfi fram á bjartari tíma
þótt áfram verði nauðsynlegt að gæta aðhalds í rekstri og útgjöldum. 

Skilmálar samkomulags  við kröfuhafa Fasteignar gerir ráð fyrir
skuldbreytingum, skilmálabreytingum og sölu eigna. Ekki er gert ráð fyrir
afskriftum eða niðurfellingum skulda. Með samkomulaginu er greint á milli eigna
sem nýttar eru til lögbundinnar grunnþjónustu sveitarfélagsins og annarra
eigna, en dregið er verulega úr leiguskuldbindingum sveitarfélagsins vegna
þeirra eigna. Samkomulagið er háð endanlegri undirritun aðila sem og skilyrðum
af beggja hálfu sem unnið verður að því að útfæra og uppfylla á næstunni ásamt
því að ljúka viðræðum við aðra hagsmunaaðila og kröfuhafa sveitarfélagsins og
samstæðu þess. Einnig er sveitarfélaginu gert kleift að huga að uppbyggingu
nauðsynlegra innviða s.s. nýs grunnskóla í Dalshverfi og fjölgun
leikskólaplássa. 

Samhliða þessu er ætlunin að færa Fasteignir Reykjanesbæjar, sem heldur m.a.
utan um félagslegt húsnæði, yfir í húsnæðissjálfseignarstofnun eins og heimild
er fyrir í nýjum lögum um almennar íbúðir og mun það létta talsvert á
skuldabyrði sveitarfélagsins. 

Þessar aðgerðir, ásamt ýmsum öðrum, munu gera Reykjanesbæ kleift að uppfylla
fjárhagsleg skilyrði sveitarstjórnarlaga og miðað við núverandi forsendur er
ekki lengur þörf á að sveitarfélagið óski eftir skipun sérstakrar
fjárhaldsstjórnar á vegum innanríkisráðuneytisins eins og útlit var fyrir um
tíma. Áfram verður þó þörf á ströngu aðhaldi í fjármálum sveitarfélagsins. 



Nánari upplýsingar veitir:

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.

s. 8252727 / kjartan.m.kjartansson@reykjanesbaer.is