|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2023-06-05 18:35:00 CEST 2023-06-05 18:35:00 CEST REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsREITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 22Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 22. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 650.000 eigin hluti að kaupverði 50.700.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Reitir hafa nú keypt samtals 4.392.496 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 72,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 356.407.796 kr. sem samsvarar 64,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 10.392.496 eigin hluti, eða um 1,39% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.038.233 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna. Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|