2024-03-27 12:01:46 CET

2024-03-27 12:01:47 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íþaka fasteignir ehf. - Ársreikningur

Íþaka fasteignir ehf.: Ársreikningur árið 2023


Stjórn Íþöku fasteigna ehf. staðfesti á fundi sínum í dag, miðvikudaginn 27. mars 2024, ársreikning félagsins fyrir árið 2023. Ársreikningur félagsins hefur nú verið birtur.

Helstu atriði ársreiknings:

  • Heildarafkoma félagsins á árinu 2023 var 1.434 m.kr., þar eru stórir þættir rekstrartekjur félagsins sem voru 2.573 m.kr. á tímabilinu og matsbreyting fjárfestingaeigna að fjárhæð 1.366 m.kr.
  • Heildar eignir félagsins námu 34.307 m.kr. m.v. 31. desember 2023, en þar af voru fjárfestingareignir 32.557 m.kr. og handbært fé 49 m.kr. Vaxtaberandi skuldir námu 19.300 m.kr. og eigið fé félagsins var 10.838 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins í lok tímabilsins er 31,6%.

Ársreikningur félagsins er meðfylgjandi og er einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.ithaka.is/fjarmala-og-markadsupplysingar.

Félagið er með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands, í flokkunum ITHAKA 070627, ITHAKA 291128 og ITHAKA 051233, og fylgir þeim reglum sem gilda um félög með skráða fjármálagerninga á skipulegum markað.

Á fundi stjórnar félagsins voru kynnt áform stjórnar, og stjórna systurfélaganna Merkúr ehf. og BLT Lyftur ehf., um að leggja fram tillögur um samruna Íþöku fasteigna ehf., annars vegar við BLT Lyftur ehf. og hins vegar við hluta Merkúr ehf., þar sem Íþaka fasteignir ehf. yrði yfirtökufélagið. Helsta eign BLT Lyftna ehf. er fasteign að Laugavegi 95-99, Reykjavík, yfirtekin fasteign Merkúr ehf. yrði Dalvegur 30, Kópavogi. Gangvirði umræddra fasteigna í árslok 2023 var 10.815 m.kr.

Áform um framangreindan samruna eru með fyrirvara um samþykki fundar skuldabréfaeigenda, sem verður haldinn þann 8. apríl 2024.

Áætluð áhrif samrunaáforma á eiginfjárhlutfall félagsins eru hagstæð fyrir rekstur og efnahag Íþöku fasteigna ehf. til lengri tíma. Áætluð EBITDA-aukning vegna samrunaáformanna eru rúmlega 600 m.kr. Áætluð áhrif á eiginfjárhlutfall í ársbyrjun 2024 yrðu þau að eiginfjárhlutfallið færi niður í um 30%. Þá gerir stjórn ráð fyrir óverulegum áhrifum til lækkunar á önnur fjárhagsleg skilyrði samkvæmt skilmálum skuldabréfaflokkanna, en þó ekki með þeim hætti að félagið standist þau ekki.

ÍÞAKA rekur og leigir út atvinnuhúsnæði, byggir upp lóðir og þróar lausnir til að mæta húsnæðisþörf fyrirtækja.

ÍÞAKA stefnir að því að vera styrk stoð í íslensku samfélagi með heilnæmt og sveigjanlegt húsnæði sem uppfyllir þarfir atvinnulífsins á hverjum tíma.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri, í síma 822-4403 eða í tölvupósti á gunnarvalur@ithaka.is.

Viðhengi