2015-12-15 00:44:00 CET

2015-12-15 00:44:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 50. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 379.848 eigin hluti fyrir
31.993.165 kr. eins og hér segir: 

Dagsetning   Tími      Keyptir  Viðskipta-ve    Kaupverð      Eigin hlutir eftir
                        hlutir            rð                           viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
9.12.2015   13:51      250.000         84,40  21.100.000               9.353.812
--------------------------------------------------------------------------------
9.12.2015   15:19      128.044         83,90  10.742.892               9.481.856
--------------------------------------------------------------------------------
10.12.2015  11:37        1.804         83,30     150.273               9.483.660
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals                379.848                31.993.165                        
--------------------------------------------------------------------------------

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 18. júní 2015. 

Reitir hafa nú keypt samtals 9.483.660 hluti í félaginu sem samsvarar 27,89% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 732.504.370 krónum. Reitir eiga nú samtals
1,26% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en
þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og
viðauka við reglugerð nr. 630/2005.