2009-09-03 11:50:08 CEST

2009-09-03 11:52:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Fyrirtækjafréttir

Össur hefur gert samning um viðskiptavakt í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn



Össur hf. hefur í  dag gert samning við  Nordea Markets (deild  innan
Nordea Bank Danmark A/S) um  viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins  í
kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn.

Samningnum er  ætlað  að  auka  viðskipti  með  hlutabréf  Össurar  í
kauphöll NASDAQ  OMX  í  Kaupmannahöfn og  stuðla  að  skilvirkri  og
gegnsærri verðmyndun á hlutabréfum félagsins.

Samkvæmt samningnum mun Nordea Markets setja fram kaup- og sölutilboð
í hlutabréf  félagsins alla  viðskiptadaga í  kauphöll NASDAQ  OMX  í
Kaupmannahöfn. Munur milli kaup- og söluverðs má ekki fara yfir 4,0%.

Samningurinn mun  taka  gildi  4.  september  2009,  þegar  hlutabréf
félagsins hafa  verið  skráð opinberlega  og  tekin til  viðskipta  í
kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn.


Nánari upplýsingar veita:
Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515 1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044