2016-03-31 13:37:10 CEST

2016-03-31 13:37:10 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Reginn hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Hækkun á hlutafé í Reginn hf.


Í samræmi við 84. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, tilkynnir Reginn
hf. að félagið hefur aukið hlutafé sitt um 126.600.000 krónur að nafnverði.
Heimild hluthafafundar er frá 22. mars 2016 og ákvað stjórn Regins á fundi
sínum síðar þann sama dag að nýta fyrrgreinda heimild hluthafafundar.
Hlutafjáraukningin var skráð hjá Fyrirtækjaskrá og Verðbréfamiðstöð Íslands hf.
23. mars 2016 og tók gildi í kerfum Nasdaq Iceland hf. þann 29. mars 2016.
Hlutafjáraukningin er vegna kaupa Regins á fasteignafélögunum Ósvör ehf. og CFV
1 ehf. Lögbundinn forgangsréttur hluthafa gilti ekki um hið nýja hlutafé. 

Hlutafé í Regin fyrir hlutafjáraukninguna var 1.428.700.000 krónur að nafnverði
og er að henni lokinni 1.555.300.000 krónur að nafnverði. Hver hlutur í Regin
er ein króna að nafnverði eða margfeldi þar af. Eitt atkvæði fylgir hverri
einni krónu í hlutafé. Reginn á ekki eigin hluti. Hinir nýju hlutir veita
réttindi í Regin frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar hjá Fyrirtækjaskrá.
Sölubann gildir um hina nýju hluti þannig að 30% hlutanna verða seljanlegir við
afhendingu, 60% eftir 6 mánuði og 100% eftir 9 mánuði frá afhendingu. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262