|
|||
![]() |
|||
2017-02-16 19:01:44 CET 2017-02-16 19:01:44 CET REGULATED INFORMATION Síminn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarSíminn hf. – Uppgreiðsla skuldabréfaflokks SKIPTI 13 01Samkvæmt skilmálum útgáfulýsingar skuldabréfaflokks SKIPTI 13 01, eins og þeim var breytt með viðauka dags. 12. apríl 2016, er Símanum hf. heimilt að greiða skuldabréfin upp að hluta eða öllu leyti 5. júlí 2017 gegn 1,25% gjaldi af þeirri fjárhæð sem þannig er greidd fyrirfram. Á fundi stjórnar Símans hf. í dag ákvað stjórnin að Síminn hf. skyldi nýta sér framangreind heimild og greiða skuldabréfið upp á fullu leyti 5. júlí nk. Eftirstöðvar skuldabréfaflokksins voru 7.101 milljónir króna miðað við 31. desember 2016 samanber ársreikningur félagsins fyrir árið 2016. Félagið hefur tryggt sér vilyrði fyrir lánsfjármögnun og mun tilkynna um endanlega niðurstöðu um forsendur fjármögnunar þegar hún liggur fyrir. Nánari upplýsingar veita: Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 (orri@siminn.is) Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 (oskarh@siminn.is) |
|||
|