|
|||
![]() |
|||
2023-03-24 17:55:03 CET 2023-03-24 17:55:03 CET REGULATED INFORMATION Síminn hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaSíminn hf. - Breytingar á hlutaféÍ 19. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann við fyrsta tækifæri og í síðasta lagi á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða. Það tilkynnist hér með að heildarfjöldi hluta í Símanum hf. er í dag, 24. mars 2023, kr. 4.215.000.000 að nafnverði og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu. Félagið átti 23.274.939 hluti eftir lækkun hlutafjár þann 17. mars 2023. Vísað er í tilkynningu frá félaginu um lækkun hlutafjár frá 15. mars 2023. Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is. ![]() |
|||
|