2016-04-22 16:15:21 CEST

2016-04-22 16:15:21 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Ársreikningur

Ársreikningur Kópavogsbæjar 2015


Jákvæð afkoma hjá Kópavogsbæ 2015

Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar nam 161 milljón króna árið 2015. Þá lækkaði
skuldahlutfall bæjarins í 162,5% á árinu, sem er ívið meiri lækkun en gert var
ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Niðurstaðan er góð í ljósi mikilla launahækkana og
stóraukins framlags til lífeyrisskuldbindinga í kjölfar kjarasamninga síðasta
árs. 

Þetta kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 sem verður lagður
fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs þriðjudaginn 26. apríl. 

Fram kemur í ársreikningi að gert var ráð fyrir 398 milljón króna
rekstrarafgangi samstæðunnar í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015, en niðurstaðan
varð 161 milljón króna afgangur. Þá varð rekstrarniðurstaða A-hluta neikvæð um
222 milljónir en  en gert hafði verið ráð fyrir 147 milljón króna afgangi. 

Laun og launatengd gjöld námu í heild alls 12.868 milljónum króna. Það er 5,5%
prósent yfir því sem áætlað var. Framlag til lífeyrisskuldbindinga
sveitarfélagsins voru tæplega 470 milljónir króna, sem er um 288 milljónum
króna umfram áætlun. 

Heildarfjöldi starfsmanna hjá sveitarfélaginu var 2.933 í árslok 2015 en meðal
stöðugildi á árinu voru 2034. 

Skuldahlutfall A-hluta er nú tæp 142% en það komst undir 150% í fyrra. Samkvæmt
aðlögunaráætlun verður skuldahlufall samstæðu komið undir 150% viðmið árið
2018. Skuldahlutfall samstæðu lækkaði í 162,5% úr 175,2% en það var 242% þegar
hæst var árið 2010. 

Tekjur sveitarfélagsins námu rúmlega 24,6 milljörðum en gert hafði verið ráð
fyrir tæplega 24,2 milljörðum í tekjum fyrir A og B-hluta.  Eigið fé nam í
árslok 2015 tæplega 16 milljörðum króna. 

„Hjá Kópavogsbæ eins og öðrum sveitarfélögum hafa kjarasamningar síðasta árs
verið miklu þyngri fyrir reksturinn en við gerðum ráð fyrir. Það jákvæða er að
okkur gengur vel að lækka skuldahlutfall bæjarins og að ársreikningurinn sýnir
jákvæða afkomu,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar. 

Íbúar Kópavogs voru þann 1. desember 34.105 og fjölgaði um 1.010 frá fyrra ári
eða um 3,1%.