|
|||
![]() |
|||
2016-11-21 17:41:25 CET 2016-11-21 17:41:25 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA N1 hf. - FyrirtækjafréttirN1 hf: Niðurstöður hluthafafundar 21. nóvember 2016Hluthafafundur var haldinn hjá N1 hf. þann 21. nóvember 2016 klukkan 16.00 að Dalvegi 10-14 í Kópavogi. Á fundinum var samþykkt tillaga um lækkun hlutafjár félagsins um 28,6%, eða um kr. 100.000.000 að nafnverði. Annað var ekki samþykkt á fundinum. Nánar um hlutafjárlækkunina Hin samþykkta tillaga felur annars vegar í sér að hlutafé félagsins verði fært niður um kr. 100.000.000 að nafnverði og hins vegar að yfirverðsreikningur hlutafjár og lögbundinn varasjóður færist niður samtals um kr. 1.186.542.720. Hluthafar hafa verið hvattir til að kynna sér hugsanleg áhrif hvorrar færslu um sig á virði hlutafjár félagsins. Samtals verður hlutafé félagsins því lækkað um kr. 1.286.542.720 og mun fjárhæðin verða greidd út til hluthafa félagsins hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra í félaginu í lok dags þann 16. desember 2016, við fyrsta mögulega tímamark þar eftir að lögboðnar forsendur fyrir útgreiðslunni hafa verið uppfylltar. Félagið mun senda tilkynningu til Kauphallar þegar endanlegar dagsetningar liggja fyrir. Meðfylgjandi eru uppfærðar samþykktir félagsins. [] |
|||
|