2015-05-26 17:42:33 CEST

2015-05-26 17:43:36 CEST


Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fjárhagsdagatal

REITIR: Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2015 þann 28. maí 2015


Reitir fasteignafélag hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2015 eftir lokun
markaða fimmtudaginn 28. maí. 

Reitir bjóða fjárfestum og markaðsaðilum á opinn fund þar sem Guðjón Auðunsson,
forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjör
fjórðungsins. 

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 29. maí kl. 8:30 á Iðu, í Zimsenhúsinu að
Vesturgötu 2a, 101 Reykjavík. 

Kynningarefni fundarins verður birt samhliða uppgjörinu og verður aðgengilegt á
fjárfestasíðu Reita, www.reitir.is/fjarfestar.