2017-03-28 14:57:00 CEST

2017-03-28 14:57:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Hætt við sameiningu Virðingar og Kviku



Tilkynning

                                                        Reykjavík, 28. mars 2017



                     Hætt við sameiningu Virðingar og Kviku

Stjórnir Virðingar hf. og Kviku banka hf. hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að
slíta viðræðum um sameiningu félaganna. Ákvörðun um að enda samrunaferlið, sem
hófst formlega 28. nóvember síðastliðinn, er tekin að vel ígrunduðu máli og er
það sameiginlegt álit stjórna beggja félaganna að fullreynt sé. Starfsfólk
Virðingar og Kviku hefur lagt hart að sér við undirbúning samrunans og hefur sú
vinna gengið afar vel þrátt fyrir þessa niðurstöðu.



Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.
Kristín Pétursdóttir, stjórnarformaður Virðingar hf. í síma 565 8500.



Um Kviku

Kvika   er   sérhæfður  fjárfestingabanki  sem  sinnir  þörfum  viðskiptavina  á
afmörkuðum  syllum með fagþekkingu  og sérhæfðu vöruframboði.  Burðarás Kviku er
öflug  eignastýring  og  bankinn  veitir  sparifjár-  og innlánseigendum alhliða
þjónustu.  Hjá  samstæðu  Kviku  starfar  samhentur hópur 86 sérfræðinga sem nær
árangri  í krafti menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Forstjóri er
Sigurður  Atli  Jónsson  og  formaður  stjórnar er Þorsteinn Pálsson. Eignarhald
Kviku  er gagnsætt og er hann eini bankinn sem er að nær fullu í eigu einkaaðila
s.s. lífeyrissjóða, fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.

Um Virðingu

Virðing  er alhliða verðbréfafyrirtæki sem  veitir fjárfestingatengda þjónustu á
sviði   eignastýringar,   markaðsviðskipta,   fyrirtækjaráðgjafar   og  reksturs
framtakssjóða.  Hjá Virðingu starfa 34 sérfræðingar og hefur félagið starfsleyfi
sem  verðbréfafyrirtæki og starfar  undir eftirliti FME.  Virðing er með ríflega
100 milljarða  króna í eignastýringu  og starfsemi í  Borgartúni 29 í Reykjavík.
Forstjóri  félagsins er Hannes Frímann Hrólfsson og formaður stjórnar er Kristín
Pétursdóttir. Nánar á www.virding.is




[]