|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||
2024-07-15 10:30:00 CEST 2024-07-15 10:30:00 CEST REGULATED INFORMATION Nova Klúbburinn hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsNova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 28Í 28. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.862.000 eigin hluti að kaupverði 14.404.060 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025. Nova Klúbburinn átti 27.209.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 31.071.000 hluti, eða um 0,84% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 119.460.280 kr. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir. Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is ![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||
|