2024-07-15 12:07:31 CEST

2024-07-15 12:07:36 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Síminn hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 28. viku 2024 keypti Síminn hf. 6.000.000 eigin hluti að kaupverði 55.500.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
9.7.202414:481.500.0009,25013.875.00064.845.854
10.7.202414:411.500.0009,25013.875.00066.345.854
11.7.202413:391.500.0009,25013.875.00067.845.854
12.7.202414:371.500.0009,25013.875.00069.345.854
  6.000.000 55.500.00069.345.854


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 25. júní 2024. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2025, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 63.345.854 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 69.345.854 eða sem nemur 2,62% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 18.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,68% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 166.875.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.