2009-03-09 08:55:15 CET

2009-03-09 08:56:05 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins varðandi málefni Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf.



9. mars 2009

Þrátt fyrir sterkt eiginfjárhlutfall og það að bankanum hafi tekist
að semja við lánadrottna sína um framlengingu lána, er fyrirséð að
vegna bágrar lausafjárstöðu getur Straumur-Burðarás fjárfestingabanki
hf. (Straumur) ekki haldið áfram reglulegri starfsemi.

Fjármálaeftirlitið hefur þess vegna tekið ákvörðun um að taka yfir
vald hluthafafundar Straums og vikið félagsstjórn í heild sinni frá
störfum, ásamt því að skipa bankanum skilanefnd sem tekur við öllum
heimildum stjórnar félagsins frá og með deginum í dag.
Skilanefndin skal fara með öll málefni Straums, hafa umsjón með allri
meðferð eigna bankans og annast rekstur hans.

Vegna þessa er bankinn lokaður.

Samkvæmt yfirlýsingu Ríkisstjórnar Íslands frá 6. október 2008 eru
innistæður í íslenskum viðskiptabönkum tryggðar að fullu. Straumur
hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki og er aðili að Tryggingarsjóði
innistæðueigenda og fjárfesta.

Í framhaldi af þessu hefur William Fall forstjóri Straums ákveðið að
segja af sér sem forstjóri Straums og tekur uppsögn hans gildi nú
þegar.

Nánari upplýsingar veitir:

Georg Andersen
Forstöðumaður Samskiptasviðs
Sími: +354 585 6707
georg@straumur.com

Fjármálaeftirlitið
Sími: +354 525 2700
Bréfsími: +354 525 2727
fme@fme.is