|
|||
2014-11-10 19:31:16 CET 2014-11-10 19:32:16 CET REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaHlutafjáraukning til forgangsréttarhafa í Eik fasteignafélagi hf.Stjórn Eikar fasteignafélags hf. ákvað á fundi sínum í dag, þann 10. nóvember 2014, að bjóða til sölu nýtt hlutafé til tiltekinna forgangsréttarhafa í samræmi við heimild stjórnar í a) lið 4. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins sem samþykkt var á hluthafafundi 17. janúar 2014. Nýti forgangsréttarhafar sér rétt sinn til kaupa á hinu nýja hlutafé í félaginu mun eigið fé félagsins hækka um allt að 3 milljarða króna. Með vísan til samandregins samstæðuárshlutareiknings 30. júní 2014, sem birtur var 28. ágúst 2014, lýsir stjórn félagsins því yfir að engar verulegar breytingar hafa orðið á efnahag þess frá síðustu skýrslu stjórnar, utan að félagið greiddi inn á lán kr. 650.000.000 af handbæru fé félagsins. Frekari upplýsingar veita: Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf. gardar@eik.is, s. 5902200 / 861-3027 Kolbeinn Friðriksson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eikar fasteignafélags hf. kolbeinn@eik.is, s. 5902209 / 7812111 |
|||
|