|
|||
2010-10-29 17:37:56 CEST 2010-10-29 17:38:56 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirBreyting á aðalmiðlarasamningumAðalmiðlarar og lánamál ríkisins hafa ákveðið að framlengja tímabundna breytingu á 3. gr. samnings í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði dags. 14. maí 2010. Til og með 2. desember 2010 verður hámarksmunur kaup- og sölutilboða fyrir RIKB 19 0226 og RIKB 25 0612 eftirfarandi: Bréf Hámarksmunur RIKB 19 0226 0,60% RIKB 25 0612 1,20% Breytingin er gerð til þess að auðvelda viðskiptavökum að sinna vakt með framangreinda flokka á eftirmarkaði. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|