|
|||
2009-08-27 01:00:26 CEST 2009-08-27 01:02:16 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - FyrirtækjafréttirÖssur sækir um skráningu á NASDAQ OMX í KaupmannahöfnStjórn Össurar hf. hefur í dag ákveðið að óska eftir að hlutabréf félagsins verði skráð í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn. Hlutabréf Össurar munu áfram vera skráð í kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi, eins þau hafa verið síðan 1999. Skráning í Kaupmannahöfn er rökrétt skref fyrir félagið og veitir aðgang að alþjóðlegum fjárfestum. Kaupmannahöfn er virtur markaður fyrir fyrirtæki á heilbrigðissviði. Skráningarreglur og aðrar lagalegar skyldur eru svipaðar í Danmörku og á Íslandi þar sem að báðar kauphallirnar tilheyra NASDAQ OMX samstæðunni. Jón Sigurðsson, forstjóri: "Skráningin á Íslandi hefur reynst okkur vel og við munum áfram leggja metnað okkar í að þjóna núverandi hluthöfum sem og nýjum. Frá því að félagið var skráð á hlutabréfamarkað hefur sala þess ríflega tuttugufaldast og Össur breyst í alþjóðlegt fyrirtæki. Skráning bréfa okkar í Kaupmannahöfn er eðlilegt framhald fyrir félagið. Skráningunni er ætlað að auka viðskipti með hlutabréf í félaginu, stuðla að eðlilegri verðmyndun þeirra og styðja við framtíðarvöxt." Gert er ráð fyrir að skráningin verði samþykkt í næstu viku. Nordea Bank mun vera umsjónaraðili útgáfunnar í Danmörku. Nánari upplýsingar verða veittar þegar skráningin hefur verið samþykkt. Í framhaldi af skráningunni íhugar stjórn félagsins lítilsháttar hlutafjáraukningu, eða sem nemur 5-7% af heildarhlutafénu, til þess að auka viðskipti með bréf félagsins. Komi til slíkrar aukningar munu bréfin verða seld til fagfjárfesta og hefur Össur ráðið Nordea Markets sem ráðgjafa vegna þessa. Viðskipti með íslenska fjármálagerninga eru háð gjaldeyrisreglum Seðlabanka Íslands. Erlendum aðilum er frjálst að eiga viðskipti með bréf félagsins í Danmörku og innlendum aðilum er frjálst að eiga viðskipti með bréfin á Íslandi. Upplýsingar um Össur, kynningarbæklingur og nánari upplýsingar um heimildir til að eiga viðskipti með bréfin sem og möguleika á að flytja þau milli Íslands og Danmerkur er að finna á heimasíðu félagsins: www.ossur.com/investors Nánari upplýsingar veita: Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515 1300 Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664-1044 |
|||
|