2012-10-16 23:36:03 CEST

2012-10-16 23:37:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Lánsfjármögnun Egilshallar lokið


Í tilkynningu Regins hf. þann 26. september sl. kom fram að fyrsta áfanga í
endurfjármögnun félagsins væri lokið með fyrirvara um áreiðanleikakönnun. Sú
áreiðanleikakönnun hefur nú farið fram án athugasemda og er umræddri
lánsfjármögnun því lokið. Fjármögnunin er verðtryggð til  10 ára, með 40 ára
endurgreiðsluferli og ber 3,85% fasta vexti. Um er að ræða eignatryggða
fjármögnun sem verður skráð í Kauphöll Íslandas, Nasdaq OMX Iceland.
Lánveitandi er REG 1 fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf. 

Reginn hf. sem öflugt skráð fasteignafélag ásamt tryggum leigusamningum við
leigutaka á borð við Reykjavíkurborg er grundvöllur þeirra hagstæðu kjara sem
félagið hefur nú tryggt sér 

Egilshöllin er ein glæsilegasta miðstöð íþrótta og afþreyingar á Íslandi. Þar
má m.a. finna eitt vinsælasta kvikmyndahús landsins, keiluhöll með tilheyrandi
veitingastöðum, innanhúss knattspyrnuvöll, fullbúið skautasvell, heilsurækt og
skotæfingasal. Fyrir utan húsið eru fjölmargir gervigrasvellir og allt um kring
frábær svæði til útivistar. Egilshöll er í heildina 30.696 m2. 

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast
rekstur á atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Regins telur 31 fasteignir og er
heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins um 158 þúsund fermetrar. 

Stefnir hf. er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með um 340 milljarða
króna í virkri stýringu. Stefnir hefur meðal annars sérhæft sig á sviði
eignatryggðrar fjármögnunar og unnið fjölmörg verkefni á því sviði. 

Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262