|
|||
2016-01-19 16:48:04 CET 2016-01-19 16:48:04 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. lýkur víxlaútboðiLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á tveimur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 160610 og nýjum flokki, LBANK 160711. Heildartilboð í útboðinu námu 3.000 m. kr. og var tilboðum tekið í flokki LBANK 160610 að fjárhæð 1.140 m. kr. á 6,53% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,5925 og í flokki LBANK 160711 að fjárhæð 1.160 m. kr. á 6,55% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,0511. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 26. janúar 2016. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. |
|||
|